Íslenska óperan
Íslenska óperan hóf starfsemi sína undir lok 8. áratugar síðustu aldar og er því sannarlega ung að árum, ekki síst ef borið er saman við aldur rótgróinna óperuhúsa í Evrópu sem telja aldur sinn í árhundruðum. En aldrei hefur skort á atorku og metnað hjá þessari ungu stofnun og ætlar hún sér fastan og mikilvægan sess í íslensku menningarlífi til frambúðar.
Takmarkið er að bjóða upp á fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá yfir vetrarmánuðina þannig að óperuáhugafólk geti gengið að því vísu að Íslenska óperan sé jafnan með eitthvað áhugavert á boðstólum.